Menningarmiðstöðin í Listagili er í eigu Akureyrarbæjar og heyrir undir menningardeild bæjarins. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar hefur aðsetur og skrifstofu í Ketilhúsinu í Listagili. Hlutverk forstöðumanns er að vinna við og bera ábyrgð á þeirri þjónustu sem Akureyrarbær veitir í Listagili, nánar tiltekið í fjölnotahúsunum Ketilhúsi og Deiglu og í tengslum við vinnustofur og gallerí sem bærinn leigir út.
Forstöðumaður hefur jafnframt daglega umsón með starfsemi í skáldahúsunum Davíðshúsi og Sigurhæðum og sér um útleigu á aðstöðu þeirri sem þar býðst. Forstöðumaður skipuleggur, ásamt starfsfólki Akureyrarstofu, stærri viðburði sem Akureyrarbær hefur með höndum svo sem Listasumri á Akureyri og Akureyrarvöku.
Skráið viðburði í bænum með því að senda tölvupóst á netfangið vidburdir@akureyri.is.
Menningarmiðstöðin Listagili
Forstöðumaður, Valdís Viðars
Ketilhúsinu
Pósthólf
115
602 Akureyri
Sími: 466-2609
Heimasíða: www.listagil.akureyri.is
Netfang: listagil@listagil.is




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.