Aðalstræti 54
Sími: 462 3555 / 462 4162
Netfang: nonni@nonni.is
Heimasíða: www.nonni.is
Nonnahús er talið byggt árið 1849. Akureyrarbær á húsið og er þar safn til minningar um rithöfundinn og prestinn Jón Sveinsson, Nonna (1857-1944). Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum árið 1978 og er að flestu leyti gott dæmi um elstu timburhúsagerðina. Í safninu er að finna ýmsa muni sem tengdir eru Nonna, myndir og bækur hans á fjölmörgum tungumálum.
Opnunartími:
Opið daglega frá kl. 10:00 - 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst.
Yfir vetrartímann er opið eftir samkomulagi við umsjónarmann.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.