Norðanbál - gestavinnustofa í Hrísey
Skólavegi
630 Hrísey
Heimasíða: nordanbal.is
Listahópurinn Norðanbál rekur gestavinnustofu í Gamla barnaskólanum í Hrísey. Hann er innréttaður með vinnustofu og
þremur svefnherbergjum til útleigu fyrir listamenn hvaðanæva úr heiminum. Markmiðið að listamenn fái möguleika til þess að vera
í Hrísey og hafi aðgang að þessum einstaka stað, gegn vægu verði. Gamli skóli, eins og hann er kallaður, er staðsettur
miðsvæðis í þorpinu í Hrísey, í u.þ.b.10 mín. göngulengd frá bryggjunni þar sem ferjan leggst að. Allar
nánari upplýsingar um umsóknir og listahópinn Norðanbál eru á heimasíðu listahópsins.
Flýtilyklar
Norðanbál - gestavinnustofa í Hrísey
Leit
Svæði
NNV 3m / s
+8.2°



Akureyrarstofa