Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands Hljómsveitin heldur að jafnaði 5-7 tónleika á hverju starfsári auk skólatónleika í grunnskólum á Norðurlandi.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Menningarhúsinu Hof
Strandgötu 12
IS-600 Akureyri
Sími: 450 1020 / 895 1788
Fax: 461 1280
Netfang: sinfonia@akureyri.is
Heimasíða: http://sinfonianord.com og http://saga.sinfonianord.is

Sinfóníuhljómsveitin heldur að jafnaði 5-7 tónleika á hverju starfsári auk skólatónleika í grunnskólum á Norðurlandi. Hljóðfæraleikarar koma víða að, kjarni hljómsveitarinnar hefur frá upphafi verið kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri og hópur hljóðfæraleikara sem býr og starfar á landsbyggðinni. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands er Guðmundur Óli Gunnarsson og framkvæmdastjóri er Magna Guðmundsdóttir.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hélt sína fyrstu tónleika 24. október 1993 og er því nú á sínu 15. starfsári. Markmið hljómsveitarinnar er að auðga menningarlíf íbúa á öllum aldri á landsbyggðinni og stuðla þannig að fjölbreyttara mannlífi og tónlistaruppeldi. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur haldið tónleika á Akureyri og víða á Norðurlandi en einnig á Vesturlandi og Austurlandi og fengið til liðs við sig kóra, einleikara og einsöngvara. Síðastliðin tvö ár hefur SN verið þátttakandi í tónleikahaldi á Austurlandi en í september 2005 var undirrituð viljayfirlýsing við Kirkju- og Menningarmiðstöð Eskifjarðar  þar sem kveður á um samstarf varðandi tónleikahald á Norður og Austurlandi þar sem miðað er  að einu samstarfsverkefni á ári.  

 

 


 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.