Ágúst

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Ágúst

  • Sjöundi þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur í 28. ágúst.  Þættirnir bera yfirskriftina "Ég sé Akureyri" og er ágústþátturinn helgaður heilbrigðismálum.  Þættirnar eru sýndir klukkan 18.30. 
  • Garðyrkufélagið á Akureyri stendur fyrir skemmtilegum viðburði 11. ágúst sem ber yfirskriftina "Akureyri græn og væn - Opnir garðar".
  • Nýnemadagar Háskólans á Akureyri eru 21. - 24. ágúst.
  • Bæjarbúar og gestir hans fara í sparifötin í ágústmánuði enda afmæli framundan með ýmiskonar ævintýrum og uppákomum. 
  • Hátíðarhöldin ná yfir tíu daga og verður hafist handa föstudaginn 24. ágúst en þá helgi 24. - 26. ágúst verður áhersla lög á unga fólkið og uppákomum sem þau vilja njóta og taka þátt í. Herlegheitin hefjast með sameiginlegri afmælishátíð Akureyrar og Háskólans á Akureyri með athöfn við Íslandsklukkuna.
  • Sjálfur afmælisdagurinn er 29. ágúst og ber hann upp á miðvikudegi.  Þá munu m.a. ungir og upprennandi Akureyingar frá leik- og grunnskólum bæjarins verða áberandi þegar afhent verður verk, skjaldarmerki bæjarins, gert með mósaíkaðferðum.  Börnin munu þramma niður í bæ og afhenda verkið við glaðlega athöfn við ráðhúsið.  Bæjarstjórn verður með hátíðarfund þennan dag og á Dvalarheimilinu Hlíð verður dagskrá enda fagnar heimilið 50 ára afmæli.  Á afmælisdeginum verða haldnir tónleikar í menningarhúsinu Hofi og er þarna um að ræða tónagjöf til Akureyringa. 
    Það er Eyþór Ingi Jónsson organist við Akureyrarkirkju sem hlaut starfslaun listamanns 2011-2012 á Akureyri sem leitaði til nokkurra tónskálda er tengjast bænum og hefur fengið þau til liðs við sig um að semja tónverk, sem verður gjöf til bæjarins.  Af þessu tilefni verður settur saman kór sem mun einungis koma fram í þetta skipti.
  • Það verður ánægjulegt að fá heimsókn í afmælisvikunni frá nýja varðskipinu Þór en Landhelgisgæslan hefur boðað komu þessa glæsilega skips í kringum afmælið og gefst kostur á að skoða það.
  • Akureyrarvaka setur í afmælisgírinn og verður afar glæsileg í tilefni af afmælinu - en hún fer fram seinni helgi hátíðarhaldanna eða 31. ágúst - 2. september. 
 
V V 3m / s +
  • Akureyri 150 - 2

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.