Apríl

Þriðji þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur 24. apríl.  Þættirnir bera heitið "Ég sé

Apríl

  • Þriðji þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur 24. apríl.  Þættirnir bera heitið "Ég sé Akureyri" og er aprílmánuður helgaður menntun. 
  • Í apríl verður hægt að njóta Páskaævintýris á Akureyri en þá er viðburðum safnað saman þannig að auðvelt sé að nálgast upplýsingar.  Bæjarbúar sem og gestir njóta útivistar í t.d. Hlíðarfjalli og í Kjarnaskógi og sækja þess á milli viðburði af ýmsu tagi, heimsækja eitthvert af fjölmörgum söfnum bæjarins, njóta þess að borða á einhverju af fjölmörgum veitingastöðum bæjarins og rölta á milli verslana og kaffihúsa í miðbænum og utan hans.
  • Á fyrsta degi aprílmánaðar verður óperusýning í menningarhúsinu Hofi þegar kammerkórinn Hymnodia flytur barokkóperuna Didi og Aaneas eftir Purcell ásamt hljómsveit.  Einsöngvarar koma allir úr röðum kórsins og stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson.
  • Á Skírdag er komið að stórtónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands en þá mun sveitin taka höndum saman við Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og einleikarann Sæunni Þorsteinsdóttur.  Flutt verður Sellókonsertí e-moll eftir Edward Elgar. Á efnisskrá verður einnig Sinfónía nr. 5 eftir Shostakovich. Eins og nafnið á tónleikunum bendir til mega áheyrendur búast við kraftmiklum og glæsilegum konsert.
  • Það verður Fjölskylduferð á skódanum í menningarhúsinu Hofi á Föstudaginn langa en þarna er auðvitað verið að vísa til tónleika til heiðurs Ingimari Eydal sem hefði orðið 75 ára í október síðastliðnum.
  • Óskar Pétursson verður i gestgjafahlutverkinu þegar hann tekur á móti landsþekktum listamönnum í menningarhúsinu Hofi 7. apríl.  það má gera ráð fyrir léttum og skemmtilegum tónleikum með óbeisluðum húmor eins og Óskari er einum lagið.
  • Vorþing AkureyrarAkademíunnar þar sem fjallað var um Guðjóns Samúelsson húsameistara ríkisins tókst með miklum ágætum.  Fasteignir Akureyrar bjóða þeim sem misstu af þessari frábæru dagskrá að hlýða á erindin fimmtudaginn 26. apríl klukkan 16.15 í sal Brekkuskóla.
  • Andrésar Andar leikarnir fara fram 18. - 21. apríl.  Þetta er viðburður sem fjölmargir sækja, jafn ungir sem aldnir og allir sammála að gera sitt allra besta í brekkum Hlíðarfjalls.
  • Vorkoma Akureyrarstofu er haldin Sumardaginn fyrsta og er þá tilkynnt hver hlýtur starfslaun listamanns auk ýmissa annarra viðurkenningar.
  • Það verður án efa hart tekist á á Arion handboltamótinu sem fram fer 20. -22. apríl.  Drengir og stúlkur fædd 1999 sýna þar hversu flink þau eru orðin í handbolta.
  • Á Sumardaginn fyrsta er ætíð dagskrá á Minjasafninu þar sem sumrinu er fagnað með brosi á vör.
  • Þátturinn "Gestir út um allt" verður sendur beint út á Rás 2 úr Hofi.  Margrét Blöndal, Felix Bergsson og hljómsveit hússins með Hjörleif Örn Jónsson í fararbroddi taka á móti góðum gestum.
  • Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári.  Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málstofu síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan.

 
Logn Logn 0m / s +10.5°
  • Innsíða - Leirutjörn sumar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.