Desember
Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Desember
- Tíundi þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur
í desembermánuði.
- Afmælisárið er á síðustu metrunum og það er upplagt að leggja leið sína á Amtsbókasafnið á Akureyri og
skoða þau fjölmörgu heimagerðu afmæliskort sem afmælisbarninu bárust en safnið mun setja upp sýningu í desember á kortunum
og verður forvitnilegt að skoða og lesa skilaboðin til Akureyrar.
- Á Fullveldisdeginum 1. desember stendur Háskólinn á Akureyri fyrir Fullveldishátíð í Háskólanum á
Akureyri og verður málþing og hátíðardagskrá af þessu tilefni.
V 3m / s
+5°