Febrúar

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Febrúar

  • Fyrsti þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri fer í loftið í 28. febrúar og bera þættirnir heitið "Ég sé Akureyri".  Þætttirnir verða á dagskrá síðasta þriðjudag frá febrúar til október og samantektarþáttur í desember.  Fyrsti þátturinn af "Ég sé Akureyri" er helgaður atvinnulífinu. 
  • Einleikstónleikar Víkingar Heiðars í menningarhúsinu Hofi.  Á dagskránni eru m.a. sex píanólög eftir akureyska tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson.
  • Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frumflytur í menningarhúsinu Hofi píanókonsert eftir Jón Ásgeirsson með einleikaranum Peter Máté en Jón samdi konsertinn sérstaklega fyrir hann.  Á efnisskránni verða einnig Sinfónía nr. 7 eftir Beethoven og forleikurinn Fingalshellir eftir Mendelssohn. 
  • Dagur Leikskólans er haldinn 6. febrúar.  Þennan dag verður opið hús í leikskólanum Lundarseli kl 9-11 og 13-15.  Til sýnis verða afmæliskort sem börnin hafa gert handa afmælisbarninu, myndlistarverk og fleira skemmtilegt. Börnin á leikskólanum Pálmholti standa fyrir sýningunni "Á hjólum" og fer hún fram í strætisvögnum bæjarins.  Sýning stendur frá 3. - 9. febrúar.  Leikskólabörn af Kiðagili sýna í flugstöðinni á Akureyri og stendur sú sýning yfir frá 6. - 13. febrúar.
  • Útivistar- og vetrarhátíðin Éljagangur stendur yfir 9. - 12. febrúar.  Fjölbreytt dagskrá fyrir útivistarfólk á öllum aldri, skíðað í Hlíðarfjalli, vélsleða- og troðaraferðir, vasaljósganga, reiðkeppni, snjósleðaspyrna, brettakeppni- og sýning, ísskúlptúrar, fjallaskíðanámskeið, snjósleðaferðir með aftanívagni, Vetrarsportsýningin í Boganum, Íslandsmeistaramótið í íscross, Íslandsgangan 2012 í Hlíðarfjalli, snjóþrúguganga og fleira skemmtilegt sem færir roða í kinnar. 
  • Snjókarlinn rís á Ráðhústorgi  á Éljagangi - hvaða nafn skyldi hann nú fá?
  • Frönsk kvikmyndahátíð í Borgarbíó 18. - 20. febrúar.
  • Opnun í menningarhúsinu Hofi á verkum Jónasar Viðars - 50 ára afmælissýning.
  • Hljómsveitin 200.000 naglbítar mæta galvaskir í menningarhúsið Hof með öll sín bestu lög og kynna nýtt efni.
  • Bergþórutónleikar í menningarhúsinu Hofi - valið efni úr söngvasafni Bergþóru Árnadóttur flutt af valinkunnum tónlistarmönnum.
  • Öskudagurinn er dagur sem Akureyringum er annt um.  Hvaða búningi ætlar þú að klæðast þennan dag?
  • Bíó Paradís í samvinnu við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb Akureyrar) og menningarhúsið Hof sýna sígildar myndir á breiðtjaldi í Hofi.  Kvikmyndin Kviðdómur eða 12 angry man frá árinu 1957 verður sýnd 22. febrúar.
  • Ari Eldjárn verður með uppistand í menningarhúsinu Hofi og er þetta frumraun hans á sviði Hofs fimmtudaginn 23. febrúar.
  • Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári.  Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málstofu síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan.

 
V V 3m / s +
  • Akureyri 150 - 1

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.