Janúar

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Janúar

  •  Dagskrá afmælisársins kynnt 17. janúar á blaðamannafundi á Minjasafninu.
  • Sjónlistamiðstöðin í Listagili - opnun í Listasafninu á sýningunni Rými málverksins.
  • Tónleikar Fjallabræðra ásamt sérstökum gestum,  Sverrir Bergmann og Jónas Sig úr Ritvélum Framtíðarinnar, í Hofi.
  • Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Samkomuhúsinu Gulleyjuna sem er ein frægasta sjóræningjasaga allra tíma!  Sýning sem er full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist.
  • Þátturinn Gestir út um allt útvarpað beint á Rás 2 úr Hofi.  Margrét Blöndal, Felix Bergsson og hljómsveit hússins með Hjörleif Örn Jónsson í fararbroddi taka á móti gestum.
  • Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári.  Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málstofu síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Hrefna Brynja Gísladóttir iðjuþjálfi á Öldrunarheimilum Akureyrar ríður á vaðið mánudaginn 30. janúar nk. og segir frá Eden– hugmyndafræðinni sem unnið er eftir á öldrunarheimilunum. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan!!

     

 
V V 3m / s +
  • Akureyri 150 - 1

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.