- Fimmti þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur í 26. júní. Þættirnir bera heitið "Ég sé Akureyri" og er júní helgaður menningu.
- Það verður mikið um dýrðir hjá Minjasafninu á Akureyri í þessum mánuði en safnið fagnar 50 ára afmæli sínu og verða tvær sýningar opnaðar 2. júní. Það er annarsvegar þemasýningin "Ég á afmæli" og hinsvegar ljósmyndasýning "Akureyri í 150 myndum".
- Sjómannadagurinn er í byrjun mánaðarsins, þar sem hetjum hafsins er fagnað og saga þjóðarinnar með tengslum við hafið skoðuð.
- Grímseyjardagurinn verður haldinn 2. júní. Meðal dagskrárliða eru sýning á bjargsigi, kríueggjaleit, ratleikur,
sigling og fleira. Loks verður botn sleginn í dagskrána með glæsilegu sjávarréttahlaðborði í félagsheimilinu að kvöldi
Grímseyjardagsins en allar konurnar í eynni koma þá með sinn sjávarrétt og úr verður hið glæsilegasta
veisluhlaðborð.
Háskólahátíð Háskólans á Akureyri, brautskráning kandidata og móttaka fer fram 9. júní. - Í kringum þjóðhátíðardaginn 17. júní fyllist bærinn iðulega af stúdentum frá Menntaskólanum á Akureyri sem hingað fjölmenna til að fagna saman.
- Á sjálfan þjóðhátíðardaginn fögnuð við saman, förum í sparifötin og drögum íslenska fánann að hún.
- Fótbolti er í hávegum hafður á N1 mótinu og Pollamótinu, þar sem annars vegar unga kynslóðin og hinsvegar þeir sem eldri eru sýna það sem í þeim býr.
- Það er engu líkt að spila golf að næturlagi líkt og gert er á Artic Open sem Golfklúbbur Akureyrar stendur fyrir.
- Listasumar fagnar 20 ára afmæli þetta árið og verða sýningar þess á afmælisárinu mjög spennandi og litríkar, bæði innan-sem utanhúss.
- Sjónlistamiðstöðin í Listagilinu opnar í Listasafninu sumarsýningu sem tileinkuð er akureyskum listamönnum.
- Í menningarhúsinu Hofi opnar samsýning systra þegar þær Margrét, Þórdís og María Jónsdætur taka höndum saman.
- Bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar verða í júní og verða án efa margar fallegar drossíur á árlegri bílasýningu félagsins.
-
Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári. Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málþing síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan.
Flýtilyklar
Júní
Leit
Svæði
V 3m / s
+5°


Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.