Mars

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Mars

  • Annar þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur 27. mars.  Þættirnir bera heitið "Ég sé Akureyri" og er marsmánuður helgaður daglegu lífi. 
  • Dagur tónlistarskólanna er haldinn hátíðlegur í marsmánuði og þá er ætíð glatt á hjalla og það verða ófáir tónarnir sem hljóma í Hofi þennan dag 3. mars.
  • Vorþing Akureyrarakademíunnar verður haldið í gamla Húsmæðraskólanum laugardaginn 10. mars kl. 13-17.  Yfirskrift þingsins er "Guðjón Samúelsson og ásýnd Akureyrar".  Meðal viðmælenda eru Pétur H. Ármannsson arkitekr, Árni Ólafsson arkitekt og Valgerður H. Bjarnadóttir.  Þingforseti er Kristín Aðalsteinsdóttir prófessor.
  • Söngdagar eru sameiginlegt verkefni leik- og grunnskóla bæjarins.  Þeir verða haldnir 16. og 23. mars milli klukkan 10 og 11. Þá munu nemendur leik- og grunnskóla sameinast í miðbæ Akureyrar og syngja nokkur lög saman.
  • Íslenski dansflokkurinn heimsækir menningarhúsið Hof 10. mars með sýninguna Minus 16 sem er eftir Ohad Naharin rokkstjörnu dansheimsins.
  • Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands spila á kammertónleikum í menningarhúsinu Hofi og er yfirskriftin Stuðlar.
    Bíó Paradís í samvinnu við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb Akureyrar) og menningarhúsið Hof sýna sígildar myndir á breiðtjaldi í Hofi.  Kvikmyndin Sjónvarpsstöðin eða Network frá árinu 1976 verður sýnd 21. mars.
  • Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári.  Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málstofu síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan.

 
V V 3m / s +
  • Akureyri 150 - 1

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.