- Á Akureyri eru þrjú skáldahús: Nonnahús, Davíðshús og Sigurhæðir og vilja sumir meina að það hljóti að vera heimsmet að hafa þrjú skáldahús í ekki stærri bæ. Í þessum mánuði er athyglinni beint að Davíðs Stefánssyni skáldinu frá Fagraskógi, Jóni Sveinssyni - Nonna og Matthíasi Jochumssyni.
-
Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári. Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málþing síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan.
Flýtilyklar
Nóvember
Leit
Svæði
V 3m / s
+5°


Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.