- Níundi þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur í 30. október. Þættirnir bera yfirskriftina "Ég sé Akureyri" og er októberþátturinn helgaður húsunum í bænum. Þættirnar eru sýndir klukkan 18.30.
- Akureyringar eru með eindæmum söngelskir og vilja gjarnan syngja í kórum, því verður októbermánuður helgaður söng og verður af þessu tilefni haldið kóramót í menningarhúsinu Hofi líkt og gert var 2011 og tókst með mikilli prýði.
- Dömulegir dekurdagar hafa fest sig í sessi sem fallega bleikur viðburður þar sem lögð er áhersla á uppákomur, vörur og þjónustu sem höfða til kvenna.
- Akureyringar eru söngelskir með eindæmum, því verður blásið til afmæliskóramóts í Hofi laugardaginn 27. október, þar sem raddir á öllum aldri fá að njóta sín.
- Háskólinn á Akureyri stendur fyrir Alþjóðadegi fimmtudaginn 25. október.
-
Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári. Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málþing síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan.
Flýtilyklar
Október
Leit
Svæði
V 3m / s
+5°


Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.