Viðburður

Information on Akureyri, North Iceland. Some of the attractions are the nothern lights, Grímsey Island and Hrísey Island, nature, waterfalls, skiing, ski

Viðburður

Ange Leccia - Hafið á Listasafninu á Akureyri

23. desember 2018

Ange Leccia
Hafið
8. desember 2018 - 17. mars 2019

Franski myndlistarmaðurinn Ange Leccia fæddist 1952 á Korsíku í Miðjarðarhafi og er náttúra þessarar sérstæðu eyju honum sífelld uppspretta sköpunar. Hafið er hans þekktasta verk, en hann umbreytir því sífellt og aðlagar sýningaraðstæðum hverju sinni. Verkið vísar í austræna heimspeki þar sem tilvist mannsins er líkt við logandi bál sem fuðrar upp á örskotsstundu.

Leccia hóf snemma að vinna með kvikmyndatæknina sem listform og tileinka sér aðferðir sem fela í sér endurtekningu, þvert á mæri listgreina. Eins og margir samtímalistamenn notar hann myndir og tónlist sem hráefni og moðar úr þekktum augnablikum vestrænnar dægurmenningar og kvikmyndasögu.

Ange Leccia er stofnandi og forstöðumaður rannsóknamiðstöðvarinnar Pavillon Neuflize OBC í Palais de Tokyo, París. Verk hans hafa verið sýnd í helstu listastofnunum heims og má þar nefna Dokumenta í Kassel, Guggenheim í New York, Skulptur Projekte í Münster, Feneyjatvíæringinn og George Pompidou menningarmiðstöðina í París.

Sýningarstjóri: Æsa Sigurjónsdóttir.

 
SSA SSA 2m / s 1.9°
  • Innsíða 2017 vetur - rjúpur

Lonely planet

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Rósenborg, Skólastíg 2
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa (hjá) akureyri.is

Lestu um Akureyri á

Við erum á Facebook

Vakinn Quality - certified travel serviceFacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.

Skráðu þig á póstlistann