Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Bergþórutónleikar - Afturhvarf, Menningarhúsinu Hofi.

17. febrúar 2012

Bergþórutónleikar - Afturhvarf

Tónleikar með völdu efni úr söngvsafni Bergþóru Árnadóttur verða í Hofi föstudaginn 17. febrúar kl. 20. Vegna mikillar eftirspurnar verða tónleikarnir fluttir í stóra sal Hofs!

Á tónleikunum flytja valinkunnir tónlistarmenn mörg af þekktustu lögum Bergþóru, en einnig lög sem sjaldan heyrast.

Fram koma: Guðrún Gunnarsdóttir, söngur, Svavar Knútur, söngur, gítar og ukulele, Aðalsteinn Ásberg, söngur og gítar, Hjörleifur Valsson, fiðla, og Pálmi Sigurhjartarson, píanó.

Sérstakur gestur á öllum tónleikunum verður Pálmi Gunnarsson, söngvari og bassaleikari, sem starfaði með Bergþóru um árabil. Þá verður „leynigestur“ MA mærin Móheiður Guðmundsdóttir.

Bergþóra Árnadóttir (1948-2007) var einn af frumkvöðlum vísnatónlistar á Íslandi og lengi vel atkvæðamesta konan í hópi söngvaskálda. Í fyrstu samdi hún einkum lög við ljóð þekktra skálda, en seinna einnig tónlist við eigin texta. Á ferli sínum sendi hún frá sér allmargar hljómplötur og hélt fjölda tónleika hérlendis og í Skandinavíu.   

Miðaverði er stillt í hóf, aðeins kr. 2.900 kr.

 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Viking tröll

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.