Skráðu þig á póstlistann
Flýtilyklar
Viðburður
Berlín: Lifandi tónlist - Dana Ýr
27. apríl 2018 kl. 16:00 - 27. apríl 2018 kl. 18:00
Huggulegt Happy Hour með lifandi tónlist
Á hverjum föstudegi á milli klukkan 16:00 - 18:00 býður Berlín gestum sínum upp á lifandi tónlist og drykki á huggulegu verði.
Dana Ýr er snót á besta aldri uppalin í Skagafirði. Hún hefur sungið og spilað á hin ýmsu hljóðfæri og flytur hún bæði frumsamin lög í bland við gömul sem allir ættu að þekkja. Hún stundar nám við tónlistarskóla Akureyrar og hefur komið víða við. Bjó og stundaði nám í tónlist í Svíþjóð um tíma og er nú að rísa aftur úr barneignadvala og kemur nú tvíefld inní tónlistarlífið aftur. Dana er ein sú dásamlegasta og eru stundir með henni þær bestu hvort sem það er í stofunni heima eða á tónleikum.
Viðburðurinn á Facebook
Leit
Svæði

