Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Brechtískur kabarett í Hömrum þriðjudaginn 21. febrúar kl 20:00.

21. febrúar 2012 kl. 20:00 - 21. febrúar 2012 kl. 00:00

Silfurtunglið býður upp á Listaflakk í samstarfi við Menningarhúsið Hof og Tónlistarskólinn á Akureyri. Brechtískur kabarett í Hömrum þriðjudaginn 21. febrúar kl 20:00.

Andrea Gylfa syngur lög eftir Kurt Weill. Þorvaldur Örn stjórnar tónlist og stórleikararnir Gestur Einar, Sunna Borg og Skúli Gauta lesa upp ljóð eftir Brecht.

Bertolt Brecht var eitt af áhrifamestu leikskáldum 20. aldar. Hann þróaði nýja tegund leikhúss sem hann kallaði epískt leikhús. Hann er einna þekktastur fyrir Túskildingsóperuna.

Söngleikhúsið:
Í verkum hans notast hann við klippingu þar sem framvindan er skyndilega rofin með söngatriðum.

Kurt Weill (1900-1950) er fyrst og fremst þekktur fyrir leikhústónlist sem hann samdi fyrir leikverk Bertolts Brechts í Þýskalandi á þriðja áratug tuttugustu aldar og í upphafi þess fjórða.

Saman sömdu þeir m.a; Túskildingsóperuna, Mahagonny og Happy End.

Hægt er að nálgast miða frá og með föstudeginum 17. febrúar kl. 13 í miðasölu Hofs.

 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Viking tröll

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.