Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Brettakeppni / sýning, með Brettadeild SKA

10. febrúar 2012 kl. 18:00 - 10. febrúar 2012 kl. 20:00

Brettakeppni og sýning
Föstudaginn 10. febrúar fer fram brettakeppni og glæsileg snjóbrettasýning á Toyotatúninu á vegum Brettadeildar Skíðafélags Akureyrar (SKA). Keppt verður á boxum og rörum (rails) í tveimur aldursflokkum, 14 ára og yngri og 15 ára og eldri. 

Búast má við fjörugri keppni í flóðlýsingu og dynjandi tónlist. Skráning fer fram á staðnum, hálftíma fyrir keppni. Keppendur verða að vera með hjálma. Reiknað er með 20 til 30 keppendum af öllu landinu og verða vegleg verðlaun í boði fyrir sigurvegara í hvorum flokki.

Bæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna á þennan skemmtilega viðburð sem gleður augað.
Keppt verður frá kl. 18-20 föstudaginn 10. febrúar.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á brettadeildska@gmail.com.

Heimasíða Skíðafélagsins er www.skidi.is.

 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.