Viðburður

Information on Akureyri, North Iceland. Some of the attractions are the nothern lights, Grímsey Island and Hrísey Island, nature, waterfalls, skiing, ski

Viðburður

Málverkasýningin Heimferð - D. Brynja Harðardóttir Tveiten - Brúnir, Eyjafjarðarsveit

4. nóvember 2018

Málverkasýning

H E I M F E R Ð

Sýningaropnun  í listaskálanum að Brúnum í Eyjafjarðarsveit 26. október kl. 18:00

Föstudaginn 26. október kl. 18.00 opnar málverkasýningin H E I M F E R Ð í kaffihúsinu og listagalleríinu Brúnum í Eyjafjarðarsveit eftir myndlistarkonuna D. Brynju Harðardóttur Tveiten. Sýningin stendur til 26. nóvember og er opin á opnunartíma listagallerísins.

Málverkasýningin H E I M F E R Ð er ferðalag sem hefur staðið yfir í tvö ár. Þetta tímabil hefur einkennst af margbreytilegum tilfinningum, þakklæti, von, ótta, sorg og sátt tengdum veikindum og missi í fjölskyldu listakonunnar. Að því er Brynja lýsir hefur verið ómetanlegt að fara á vinnustofuna á slíkum stundum. Finna ró og kraft í myndsköpun sem vísar í draumkenndar minningar um útsýnið sem blasti við frá herbergisglugga bernskuheimilis hennar á Árskógssandi. Himinn, fjöll og haf renna saman við sjóndeildarhringinn en Brynju líður hvergi betur en með hafið fyrir augum.

Öll verkin eru unnin með olíu. Myndbygging er einföld og flæðir milli birtu, myrkurs, kyrrðar og óróleika.

Dagbjört Brynja Harðardóttir Tveiten (1971) lærði myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og Örebro konstskola í Svíþjóð. Þetta er fjórða málverkasýning hennar en að auki hefur hún haldið þrjár ljósmyndasýningar. Brynja hefur sinnt ýmsum störfum meðfram listsköpun sinni, m.a. innan heilbrigðis-, fjármála-, menntunar- og menningargeirans og starfar núna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Nánari upplýsingar hjá Brynju.

Gsm: 6617704

brynjalilla@gmail.com

Facebook: „H E I M F E R Г

 
Alskýjað NNV NNV 3m / s
  • Innsíða 2016 - loftmynd skemmtiferðaskip

Lonely planet         

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Rósenborg, Skólastíg 2
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa (hjá) akureyri.is

Lestu um Akureyri á

Við erum á Facebook

Vakinn Quality - certified travel serviceFacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.

Skráðu þig á póstlistann