Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Dagur leikskólans - opið hús í leikskólanum Lundarseli

6. febrúar 2012

Dagur leikskólans - opið hús í leikskólanum Lundarseli kl 9-11 og 13-15. Akureyrarbæ er 150 ára á árinu og í tilefni þess ætla börnin í Lundarseli að gera afmæliskort. Afmæliskortin verða til sýnis þennan dag á deildum barnanna en börnin munu svo færa Amtbókasafninu kortin síðar. Einnig verða fleiri myndlistarverk eftir börnin til sýnis.  Plakat með gullkornum leikskólabarna verður til sýnis en á Degi leikskólans ætlar Félag leikskólakennara að gefa öllum sveitarfélögum landsins plakat með gullkornum frá leikskóla börnum.  Myndband Kríudeildar rúllar í salnum. Myndbandið sem ber titilinn umhyggja og virðing, var tilnefnt sem eitt af fimm myndböndum í stuttmyndakeppni leikskólanna, sem haldin var í tilefni af Degi leikskólans 2011 á vegum FL og FSL. Í dómi um myndina segir: Myndin fjallar um hughrif og hreinar tilfinningar, sem komast algjörlega til skila. Mikil virðing fyrir viðfangsefninu. Myndina mætti að ósekju sýna foreldrum allra leikskólabarna. Hér eru börnin góð fyrirmynd fullorðna.Heitt á könnunni.  Kaffi, te og djús verður í boði í salnum.

 

 

 
V V 3m / s +
  • Innsíða - golf Jón Óskar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.