Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Viðburður
Engin hlutverk, sýning Guðrúnar Þórsdóttur í Flóru
25. febrúar 2012
Guðrún Þórsdóttir sýnir í Flóru í Listagilinu og ber sýningin heitið Engin hlutverk. Guðrún hefur verið að skoða heimildaljósmyndun í vetur í Myndlistaskólanum á Akureyri þar sem hún mun ljúka námi af fagurlistadeild í vor. Hún stefnir á meira nám í myndlist áður en langt um líður. Guðrún hefur unnið við ýmislegt um tíðina og þá aðallega í menningar- og mannúðarmálum og fer það vel með myndlistinni.
Guðrún segir um sýninguna: "Mikið er um fordóma hér á landi og sérstaklega gagnvart asískum eiginkonum. Ég var svo lánsöm að finna fjölskyldu sem var til í að láta mynda sig. Að vera fluga á vegg hjá fjölskyldu sem ég þekki ekkert, að ná tengslum og trausti er gerlegt með gagnkvæmri virðingu."
Sýningin stendur til laugardagsins 3. mars 2012 og það er opið fimmtudaga kl. 10-18, föstudaga kl. 10-16 og laugardaga kl. 14-16.
Leit
Svæði
V 3m / s
+5°


Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.