Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Frumflutningur SN

12. febrúar 2012

Það er mikill heiður fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að fá tækifæri til að frumflytja píanókonsert eftir Jón Ásgeirsson með einleikaranum Peter Máté en Jón samdi konsertinn sérstaklega fyrir hann. Á efnisskránni verða einnig Sinfónía nr. 7 eftir Beethoven og forleikurinn Fingalshellir eftir Mendelssohn.

Peter Máté er af ungversku bergi brotinn en hann var fæddur í Ro??ava í Tékkóslóvakíu. Hann stundaði píanónám frá ungum aldri og lauk kennaraprófi frá Konservatoríunni í Ko?ice og einleikara- og mastersgráðu  úr Tónlistarakademíunnni í Prag. Á námsárunum vann hann til margra verðlauna í heimalandi sínu og síðar í alþjóðlegum keppnum. Peter hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990, fyrst á Stöðvarfirði svo Álftanesi og loks í Kópavogi. Hann hefur starfað við marga skóla en kennir nú við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík. Peter hefur haldið fjölda einleikstónleika, leikið einleik með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og tekið þátt í kammertónleikum víða í Evrópu og Bandaríkjunum.

 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Viking tröll

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.