Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Gamanleikurinn Alvöru menn í Menningarhúsinu Hofi, tvær sýningar í kvöld

24. febrúar 2012 kl. 18:30 - 24. febrúar 2012 kl. 00:00

Alvöru menn koma í Hof föstudagskvöldið 24. febrúar, tvær sýningar kl. 18:30 og 22:00.

Hér er á ferðinni gamanleikur af bestu gerð með blöndu af uppistandi, söng og líkamlegum áhættuleik. Leikritið er eftir Glynn Nicholas og Scott Rankin.

Verkið segir frá þeim Hákoni, Smára og Finni Snæ. Þeir eru allir háttsettir vinnufélagar en Guðmundur, eigandi fyrirtækisins tilkynnir þeim að þeir þurfi að fara á sólareyju til að endurskipuleggja fyrirtækið og það verði að reka einhvern. Ferðin verður því full af spennu, samkeppni og óvæntum uppákomum.

Leikarar eru þeir Egill Ólafsson, Jóhann G. Jóhannsson, Gunnar Helgason (í stað Kjartans Guðjónssonar) og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Með þeim á sviðinu er píanóleikarinn snjalli Pálmi Sigurhjartarson sem leikur undir í lögunum auk þess að sjá um lifandi leikhljóð.

Leikstjórn: Gunnar Helgason

 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Viking tröll

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.