Skráðu þig á póstlistann
Flýtilyklar
Viðburður
Græni Hatturinn: Ásgeir
28. júlí 2018 kl. 22:00 - 28. júlí 2018 kl. 00:00
Ásgeir heldur í fyrsta skipti í tónleikaferðalag um Ísland þar sem hann kemur fram á alls 14 tónleikum dagana 17. júlí til 1. ágúst.
Á tónleikunum frumflytur hann m.a. glænýtt efni sem mun
prýða hans þriðju plötu sem væntanleg er í upphafi næsta árs.
Um lágstemmda og hlýlega tónleika er að ræða þar sem rödd Ásgeirs fær að njóta sín en Ásgeir kemur fram ásamt Júlíusi
Róbertssyni félaga sínum. Forsala er hafin á tónleikana á Miði.is . Miðaverð er krónur 4.500.
Ásgeir gaf út sína aðra plötu, Afterglow, í maí á síðasta ári og hélt í kjölfarið í stíft tónleikaferðalag um Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Því tónleikaferðalagi lauk um páskana í
Ástralíu. Nú er hann mættur aftur í hljóðver til að taka upp sína þriðju plötu fullur af orku. Þá kviknaði löngun til þess að ferðast um Ísland að sumri til með gítarinn einan að vopni til að
prufukeyra hið nýja efni í bland við eldri lög.
Einfalt skyldi það vera, rétt eins og við upphaf ferils
Ásgeirs árið 2012 þegar hann og Júlíus vinur hans léku á fjölmörgum tónleikum við hin ýmsu
tækifæri. Það fer nefnilega allt í hringi og stundum er gott að leita aftur í ræturnar, í upphafið, áður en næsti hringur hefst, samanber Hringsól.
Leit
Svæði

