Skráðu þig á póstlistann
Flýtilyklar
Viðburður
Jólasölusýning Myndlistarfélagsins í Mjólkurbúðinni
23. desember 2018 kl. 14:00 - 23. desember 2018 kl. 17:00
Hvernig væri að gefa eitthvað alveg einstakt í jólagjöf þetta árið? Ekki Arnald með skiptimiða eða finnska nammiskál, heldur brakandi ferska list og það norðlenska í þokkabót!
Myndlistarfélagið ætlar að slá upp sýningu í markaðsformi núna í desember. Þar munu félagar bjóða fala einhverja gimsteina úr eigin ranni, ný verk og hugsanlega reynslumeiri í bland.
Sýningin opnar þann 8. desember og verður opin flesta daga til jóla. Verkin verða seld beint af veggnum og hægt verður að pakka þeim inn á staðnum, með listrænan innblástur beint í æð.
Góðar líkur á mandarínum, glöggi, konfekti og öðrum freistingum að falla fyrir.
Við verðum með opið allar helgar fram að jólum. Hlökkum til að sjá ykkur!!
Leit
Svæði

