Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Kristinn G. Jóhannsson opnar málverkasýninguna "MANNABYGGÐ MEÐ STRÖNDUM" í Mjólkurbúðinni í Listagili

4. febrúar 2012 kl. 14:00 - 4. febrúar 2012 kl. 00:00

Kristinn G. Jóhannsson opnar málverkasýninguna "MANNABYGGÐ MEÐ STRÖNDUM" í
Mjólkurbúðinni Listagili laugardaginn 4.febrúar kl.14

 Kristinn G. Jóhannsson um sýninguna:
,,Ég hefi einatt leitað yrkisefna í nánasta umhverfi mínu.  Undanfarin ár
hefi ég gengið til litgrasa heima á Akureyri , ort um brekkurnar í bænum
með flúri og fagurgala. Vorbrekkur, vetrarbrekkur, haustbrekkur og hvað nú
allt hét.  Hér kveður við allt annan tón þegar hugurinn hvarflar til fyrri
heimkynna undir bröttum hlíðum við sjó.  Vatneyri undir Brellum og
Ólafsfjarðarhorn undir Tindaöxl.  Þessi verk eru þó uppspuni eins og vera
ber en sækja þræði  þangað sem búseta fólks er með ströndum fram. Í þeirri
mannabyggð var  gott að vera".

Málverkasýning Kristins G. Jóhannsonar stendur til 19.febrúar.

Mjólkurbúðin er opin laugardaga og sunnudaga milli kl.14-17 og eftir frekara samkomulagi.


 
V V 3m / s +
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.