Viðburður

Information on Akureyri, North Iceland. Some of the attractions are the nothern lights, Grímsey Island and Hrísey Island, nature, waterfalls, skiing, ski

Viðburður

Listasafnið á Akureyri: Louisa Matthíasdóttir - Stúlka með hjól

10. febrúar 2018

Laugardaginn 9. desember kl. 15 verður opnuð sýning á verkum Louisu Matthíasdóttur, Stúlka með hjól, í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi.

Louisa Matthíasdóttir (1917-2000) var einn af framsæknustu listamönnum sinnar kynslóðar. Heilir og skýrir myndfletir og tærir og einfaldir litir einkenna verk hennar. Louisa stundaði nám í Evrópu og Bandaríkjunum og var búsett í New York frá árinu 1942. Hún hélt þó sambandi við Ísland og í verkum hennar má glöggt sjá áhrif íslensks landslags og birtu. Louisa málaði einnig uppstillingar, samferðafólk og sjálfsmyndir sem sjá má á þessari sýningu.

Stúlka með hjól er byggð á sýningunni Kyrrð sem Listasafn Reykjavíkur setti upp á Kjarvalsstöðum í apríl síðastliðnum. Með henni er framhaldið röð sýninga á verkum merkra íslenskra myndlistarkvenna í Listasafninu á Akureyri en áður hafa verið settar upp sýningar á verkum Elísabetar Geirmundsdóttur og Nínu Tryggvadóttur.

Fjölskylduleiðsögn verður um sýninguna með Heiðu Björk Vilhjálmsdóttur, fræðslufulltrúa, laugardagana 16. desember og 20. janúar kl. 11-12. Þriðjudaginn 23. janúar kl. 17-17.40 heldur Jón Proppé, listheimspekingur, Þriðjudagsfyrirlestur um Louisu Matthíasdóttur.

Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.

www.listak.is

 
Alskýjað NNV NNV 3m / s
  • Innsíða 2016 - Eyrin

Lonely planet         

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Rósenborg, Skólastíg 2
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa (hjá) akureyri.is

Lestu um Akureyri á

Við erum á Facebook

Vakinn Quality - certified travel serviceFacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.

Skráðu þig á póstlistann