Skráðu þig á póstlistann
Flýtilyklar
Viðburður
Listasafnið á Akureyri: Sköpun bernskunnar 2018
1. apríl 2018
Sköpun bernskunnar 2018
Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
24. febrúar - 15. apríl 2018
Opnun, laugardaginn 24. febrúar kl. 15
Þetta er fimmta sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp til þess að örva skapandi starf og hugsun skólabarna á aldrinum tveggja til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru börn, starfandi listamenn og Leikfangasýningin á Akureyri. Sköpun bernskunnar er því samvinnuverkefni í stöðugri þróun og er hver og ein sýning sjálfstæð og sérstök.
Sýningin hefur vakið verðskuldaða athygli og var valin til þátttöku í Barnamenningarhátíð Mennta- og menningarmálaráðuneytisins 2017. Þemað að þessu sinni er tröll í víðum skilningi sem vísar í þjóðsögur Íslendinga. Á sýningunni mætast þátttakendur og eiga listrænt samtal við sýningargesti.
Þátttakendur að þessu sinni eru Georg Óskar, Ninna Þórarinsdóttir, Sigga Björg Sigurðardóttir, Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi, Grímseyjarskóli, Oddeyrarskóli og leikskólarnir Iðavöllur og Krógaból.
Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Leit
Svæði

