Skráðu þig á póstlistann
Flýtilyklar
Viðburður
Myndlistarsýning - Margrét Kröyer "Sextándi" í Hvítspóa
6. desember 2019 kl. 13:00 - 6. desember 2019 kl. 17:00
Margrét Kröyer opnar sýningu sína
sextándi
16. nóvember 2019 kl. 14-17 í Hvítspóa Gallerí, Óseyri 2.
Margrét (1967) er Akureyringur, útskrifaðist af myndlistabraut Menntaskólans á Akureyri 1987, grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1996 og hefur starfað við hönnun meðfram öðru síðan og rekið eigið fyrirtæki.
Árið 2010-2013 stundaði Margrét nám hjá Beverly Ryan (The Art League) í Bandaríkjunum. Margrét hefur haldið fjölda samsýninga í Bandaríkjunum, tekið þátt í viðburðum og haldið einkasýningar.
Þetta er fyrsta einkasýning hennar á Íslandi
Verk Margrétar eru til sölu á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Sýningin verður til 16. Desember 2019 og er opin á virkum dögum frá kl. 13-17.
Leit
Svæði

