Viðburður

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Viðburður

Rými málverksins, sýning í Listasafninu á Akureyri

29. febrúar 2012

Rými málverksins, sýning í Listasafninu á Akureyri.  Sýningarstjóri Einar Garibaldi Eiríksson.  Þetta er samsýning tólfungramyndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að takast á við sögu og arfleifð málverksins í listsköpun sinni.  Á sýningunni getur að líta þverskurð þeirra fjölbreyttu hræringa sem eiga sér stað í samtímamálverki, þar sem margslungnum áhrifum er umbreytt og kollvarpað í gjöfulu samtali við ólíka miðla og tækni. Það er engu er líkara en að sú afhelgun sem átt hefur sér stað á málverkinu sem miðli,hafi opnað honum nýja,fjölbreytta og áður óþekkta möguleika til könnunar á veröldinni.
Á sýningunni eru ný málverk sem flest eru gerð sérstaklega af þessu tilefni og sýna vel þann þrótt, leikgleði og áræði er einkennir málverk samtímans, ásamt því að varpa skemmtilegu ljósi á þær fjölbreyttu birtingarmyndir sem málverkið hefur tekið á sig á undanförnum misserum, þar sem fjölþætt vinnubrögð og vísanir hafa valdið straumhvörfum á miðlinumjafnt í efnis-, tækni- og hugmyndafræðilegu tilliti.
Listamennirnir sem þátt taka í sýningunni eru: Arna Óttarsdóttir, Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Bjarni Þór Pétursson, Davíð Örn Halldórsson, Gunnar Már Pétursson, Halldór Ragnarsson, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jeannette Castioni, Kristín Rúnarsdóttir, Logi Bjarnason, Solveig Pálsdóttir og Þorvaldur Jónsson. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi Eiríksson
Verk listamannanna eru unnin úr margskonar efnivið, þar sem hefðbundnar aðferðir málverksins skarast á við ólíka miðla, aðferðir og tækni. Þau beita innsæi sínu og ímyndunarafli til framlengingar á möguleikum miðilsins og þannig opna þau honum ný svæði vitundar og skilnings þar sem allir möguleikar eru opnir.
Við hæfi er að ný Sjónlistamiðstöð hefji starfsemi sína með sýningu á nýjum straumum í íslensku málverki. Á sýningunni er sleginn nýr tónn í íslenskrimyndlist og fram stígur kynslóð listamanna er vinnur að endurskilgreiningumálverksins í nútímasamhengi.

 

 
V V 6m / s +5.5°
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.