Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Viðburður
Sigríður Thorlacíus ásamt hljómsveit - Snorri Helgason
11. febrúar 2012 kl. 22:00 - 11. febrúar 2012 kl. 00:00
Sigríður Thorlacius flytur frönsk dægurlög ásamt Ómari Guðjónssyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni og Magnúsi Trygvasyni Eliassen. Prógramið var sett saman að beiðni Alliance Francaise á Íslandi í tilefni 100 ára afmælis félagsins og flutt í Kaldalóni í Hörpu í nóvember síðastliðnum. Lögin á prógraminu eiga það sameiginlegt að vera vinsæl dægurlög frá liðinni öld, flutt af hinum og þessum ástsælum flytjendum frá hinum frönskumælandi heimi."
Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hitar upp fyrir tónleika Sigríðar en Snorri hefur á undanförnum árum skapað sér gott orð í tónlistarheiminum bæði innanlands sem utan. Tónlist Snorra er nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Tónlist Snorra hefur verið líkt við söngvaskáld eins og Neil Young, Paul Simon og Harry Nilsson sem voru upp á sitt besta á árunum í kringum 1970.
Snorri hefur verið starfandi sem tónlistarmaður í u.þ.b. 5 ár og hefur gefið út 4 plötur, 2 með hljómsveitinni Sprengjuhöllin og tvær sólóplötur, I'm Gonna Put My Name On Your Door (2009) og Winter Sun(2011) sem allar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda. Lag Snorra, Verum í Sambandi, vann meðal annars til íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir lag ársíns vorið 2008.
Hljómsveit Snorra Helgasonar er síbreytilegt fyrirbæri og núna skipa hana einungis tveir einstaklingar ásamt Snorra, þau Sigurlaug Gísladóttir(múm & Mr. Silla) sem syngur og spilar á ukulele og Guðmundur Óskar Guðmundsson(Hjaltalín, Borko, Heiðurspiltar o.fl.) sem spilar á rafbassa og barítóngítar.
Leit
Svæði
V 6m / s
+5.5°


Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.