Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Viðburður
Stofnun Barnabóka seturs, Yndislestur æsku minnar og upplestur á Amtsbókasafninu
4. febrúar 2012 kl. 12:00 - 4. febrúar 2012 kl. 00:00
Laugardagur 4. febrúar kl. 12.00 verður stofnað Barnabókasetur á vegum Háskólans á Akureyri, Minjasafnsins og Amtsbókasafnsins.
Komdu á Amtsbókasafnið á laugardaginn og rifjaðu upp gömul kynni við góða vini. Skoðaðu nýja sýningu um barnabækur og yndislestur, hlustaðu á upplestur og gríptu með þér lesefni fyrir þig og börnin.
Sigrún Klara Hannesdóttir, fyrrverandi landsbókavörður rifjar upp bernskulestur
sinn og segir frá Barnabókasetrinu.
Katrín Jakobsdóttir, mennta‐ og menningarmálaráðherra rifjar upp minnisstæða
barnabók og opnar sýningu um eftirlætisbarnabækurnar okkar.
Kristín Helga Gunnarsdóttir og Þorgrímur Þráinsson lesa úr efirlætisbarnabókum æsku sinnar.
Crispin Tinni Gíslason og Una Haraldsdóttir lesa úr bókum efir Þorgrím og Kristínu Helgu.
Leit
Svæði
V 6m / s
+5.5°


Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.