Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Viðburður
Sýningar þýskra listamanna
4. ágúst 2012 - 26. ágúst 2012
Verkefnið Collaboration (Samstarf) var sett saman árið 2008 af listamönnum frá München í Þýskalandi undir stjórn Thomasar Thiede. Það byggir á því að kynna listamenn frá München á alþjóðlegum vettvangi og koma á samstarfi við aðra listamenn víðsvegar um heim. Sýningarnar COLLABORATION_5 / SAMSTARF_5 verða settar upp í GalleríBOXi/Sal Myndlistarfélagsins og í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Á þessum sýningum gefur að líta verk sem sérstaklega eru gerð fyrir þessa ólíku sýningarstaði með aðstoð íslenskra listamanna. Samstarf og samvinna eru mikilvægir þættir í vinnu listamannanna. Listamennirnir sem sýna eru: Anton Bosnjak, Beate Engl, Leonie Felle, Sandra Filic, Maximilian Geuter, Elias Hassos, Alexander Steig, Thomas Thiede. Sýningarstjórar: Hlynur Hallsson, Beate Engl, Thomas Thiede og Alexander Steig.
Sýningarnar munu standa yfir í GalleríBOXI dagana 4.-19. ágúst og en 4.-26. ágúst í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Koma listamannanna og sýningarnar eru styrktar af Sendiráði Þýskalands í Reykjavík, Menningarráði Eyþings, Stiftung Federkiel, Landeshauptstadt München Kulturreferat, Hörgárbyggð, Ásprent og Procar.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Hallsson í hlynur(hjá)gmx.net og síma 659 4744. Einnig má sjá nánari upplýsingar HÉR.
Leit
Svæði
SSA 3m / s
+12.9°


Akureyrarstofa