Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Viðburður
Var Fjallkonan vísindakona? Fyrirlestur með Sigurði Bergsteinssyni
9. febrúar 2012 kl. 17:00 - 9. febrúar 2012 kl. 00:00
Var ,,Fjallkonan" vísindakona?

Sumarið 2004 fundust leifar ríkulega búinnar konu frá 10. öld, norðan Vestdalsheiðar við Seyðisfjörð. Margt var einkennilegt við þennan fund. Þetta er líklega ríkulegast búna konan sem fundist hefur hér á landi en hún virðist ekki vera lögð í gröf og verður að teljast einkennilegt að höfðingjakonu hafi ekki verið leitað, hafi hún orðið úti, til þess að gera henni viðeigandi gröf. Ekki var að sjá að um nokkurn umbúnað eins og tíðkaðist við greftranir væri að ræða, enda ekki vitað til þess að heiðið fólk hafi verið jarðsett uppi á heiðum en þessi kona fannst í um 700 metra hæð. Konan var búin fjórum gullhúðuðum nælum, hringnál úr bronsi auk þess sem hún bar a.m.k. rúmlega 500 perlur af ýmsu tagi. Áður höfðu fundist samanlagt rúmlega 600 perlur á Íslandi sem gefur hugmynd um hversu óvenjulegur fundurinn er. Vísindalegar aðferðir fornleifafræðinnar sýna hvenær konan var uppi, hve gömul hún var þegar hún dó og mæling á hlutfalli strontium samfellna í tönnum sýnir að hún sleit barnsskónum utan Íslands. En hver var þessi kona og hver var staða hennar? Þessum spurningum er erfiðara að svara og verður líklega aldrei svarað með fullri vissu. Í fyrirlestrinum verða færðar líkur að því að konan hafi verið vísindakona eða Völva með því að bera fundinn saman við kvennagrafir frá sama tíma og ritaðar heimildi
Leit
Svæði
V 6m / s
+5.5°


Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.