Skráðu þig á póstlistann
Flýtilyklar
Viðburður
Gongslökunarstund í Akureyrarkirkju
24. apríl 2019 kl. 20:00 - 25. apríl 2019 kl. 21:30
Vertu velkomin á frían hljóðslökunarviðburð þar sem harmonium, 10 gong, glæsilegt kirkjuorgel og gítarhljómar mæta þér á endurnærandi hátt.
Við kveðjum veturinn með þakklæti.
Engin skráning, húsið opnar kl 19:30.
30 þykkar dýnur á staðnum og 25 þunnar dýnur. Það er ss val um að sitja á bekkjum eða liggja á dýnum.
Tónlistarfólkið:
Eyþór organisti og snillingur spilar af fingrum fram
Arnbjörg Kristín syngur og spilar á 41” Universe og Venusgong
Diana Sus spilar á gítar og syngur
Fanney Kristjáns syngur
Helena Ketils spilar á 28" Jupiter gong
Sigríður Ketils spilar á 32" Symphonic og gong
Sólveig Bennýar spilar á 32" Symphonic gong
Þóra Sólveig spilar á 32" Niburu gong og kristalskálar
Dýrleif spilar á 24" Venus gong
Ester Guðbjörnsdóttir spilar á 32" Chiron gong
Kristín Laufey Ingólfsdóttir spilar á 24" Mánagong
Hlökkum til að sjá ykkur
Í kærleika
Leit
Svæði

