Áramótabrenna og flugeldasýningViðburður

Information on Akureyri, North Iceland. Some of the attractions are the nothern lights, Grímsey Island and Hrísey Island, nature, waterfalls, skiing, ski

Viðburður

Áramótabrenna og flugeldasýning

31. desember 2018 kl. 20:30 - 31. desember 2018 kl. 00:00

Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm á gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á glæsilega flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Það er björgunarsveitin Súlur sem stendur fyrir viðburðinum með styrk frá Norðurorku og Íslandsbanka.

Áramótagestir eru hvattir til að mæta með stjörnublys og hlífðargleraugu en ekki hafa meðferðis eigin flugelda. Bílastæði verða í nágrenni við brennuna en þeir sem búa nálægt svæðinu eru hvattir til að koma gangandi til að minka umferð um svæðið.

Einnig verða áramótabrennur í Hrísey og Grímsey. Í Hrísey hefst brennan kl. 17.00 og í Grímsey kl. 20.00

Eftir áramótin verða notaðir flugeldar fjarlægðir ef þeim hefur verið safnað saman við lóðarmörk.

Upplýsingar um afgreiðslu- og opnunartíma um jól og áramót á Akureyri er að finna á visitakureyri.is.

Hlekkur á gagnlegt skjal Akureyrarstofu um það sem er að gerast á Akureyri um jól og áramót.

 
Alskýjað NNV NNV 3m / s
  • Innsíða 2016 - Leirutjörn

Lonely planet         

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Rósenborg, Skólastíg 2
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa (hjá) akureyri.is

Lestu um Akureyri á

Við erum á Facebook

Vakinn Quality - certified travel serviceFacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.

Skráðu þig á póstlistann