Grímsey liggur á heimskautsbaug, 41 km frá norðurströnd Íslands. Hún er 5,3 ferkílómetar að flatarmáli og 5,5 km að lengd. Eyjan er mynduð úr blágrýti og myndar það víða afar fallegt stuðlaberg sem er vinsælt myndefni ljósmyndara. Fuglalíf er einstakt, tegundir margar og fjöldi fugla mikill. Víða er einstök aðstaða til að ljósmynda og skoða fuglalífið, bæði í fuglabjörgum og eins í bökkum eyjarinnar. Ein stærsta lundabyggð Íslands er í Grímsey.
Afþreying sem staðurinn býður upp á er t.d. sjóstangveiði, hvalaskoðun, bátsferð hringinn í kringum eyjuna, fuglaskoðun, sund, sjálf eyjan er sannkölluð paradís sem gaman er að labba um og skoða með og án leiðsagnar. Á eyjunni er veitingarstaðurinn Krían sem er opin yfir sumartímann. Við höfnina stendur svo lítið sætt handverkshús þar sem hægt er að fá keypt kaffi og vöfflur þá daga sem ferjan stoppar. Verslunin Búðin er opin alla daga og þar er hægt að fá allar nauðsynjavörur og meira til.
Nokkrir viðburðir eiga sér stað árlega m.a. Grímseyjardagurinn sem haldinn er í lok maí og Fiske-dagurinn þann 11.nóvember.
Afþreying:
Gönguferðir með leiðsögn
1-2 klst. gönguferð með leiðsögn um eyjuna. Sími: 467 3103, Netfang: basar@visir.is
Bátsferðir, sjóstangaveiði, hvalaskoðun
1-2 klst. bátsferðir kringum eyjuna með möguleika á að renna fyrir fisk eða hvalaskoðun. Sími 467 3103, Netfang: basar@visir.is
Sund
Góð innisundlaug og heitur pottur er í eyjunni. Opin allt árið, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl.10.00 - 21.30 og laugardaga 14.00 - 16.00,
lokað aðra daga. Sjá einnig auglýsingar í Búðinni eða í Síma 897 3123.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.