Munkaþverárstræti 23
600 Akureyri
Sími: 861 8864
Netfang: munkur@simnet.is
Heimasíða: http://altunga.is/pages.php?idpage=3019
Orlofsíbúð í kjallara/jarðhæð Munkaþverárstræti 23 á Akureyri. Íbúðin er 50 fermetrar og tveggja
herbergja.
Rýmið samanstendur af svefnherbergi með hjónarúmi (eða tveimur einstaklingsrúmum), stofu með tvíbreiðum svefnsófa, eldhúsi og baði.
Íbúðin er vel búin húsmunum og gestum býðst að fara í heitan pott sem er staðsettur rétt við innganginn í íbúðina. Þráðlaust Internet er í íbúðinni og hægt að fá aðgang að þvottavél og þurrkara. Örstutt er niður í miðbæ, á Glerártorg og í sundlaugina.
Reykingar eru ekki leyfðar í íbúðinni.
Allar upplýsingar veita Sigrún eða Jón í síma 861 8864 og bóka má íbúðina í tölvupósti á netfangið munkur@simnet.is



Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.