Hótel Akureyri
Akureyri Guesthouse
Akureyri Apartment
Hafnarstræti 67
600 Akureyri, Iceland
www.hotelakureyri.is
Email: hotelakureyri@hotelakureyri.is
Símil: +354 462 5600
fax: +354 462 5601
Hótel Akureyri er huggulegt hótel í hjarta Akureyrar. Þaðan er stutt að ganga í alla þjónustu sem og afþreyingu. Hótelið býður uppá vinalega og góða þjónustu og rólegt andrúmsloft. Á hótelinu eru 19 þægileg herbergi þar sem engu hefur verið til sparað. Hótel Akureyri er á fjórum hæðum og státa mörg herbergi af glæsilegu útsýni yfir Akureyrarpoll. Þá er vert að taka fram að ekki er lyfta í hótelinu en boðið er upp á aðstoð með töskuburð.
Herbergin eru hlýleg, með baðherbergi, kæliskáp, fjölrása sjónvarpi og þráðlausu interneti. Herbergin eru á þremur efri hæðum hússins en rúmgóður morgunverðarsalur og setustofa á neðri hæð. Þráðlausa internetið okkar er frítt og að auki er tölva í móttöku fyrir gesti sem er bæði nettengd og tengd prentara Hótel Akureyri er reyklaust hótel. Næg bílastæði eru við hótelið.
Hótel Akureyri býður einnig uppá íbúðir sem staðsettar eru við Skipagötu 2. Í boði eru tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir með uppábúnum rúmum, sjónvarpi og öllum borðbúnaði




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.