Tjaldsvæðið við Hamra

Tjaldsvæðið við Hamra Hamrar er flott tjaldsvæði skammt frá friðsælu útivistasvæði Kjarnaskógi og Golfvelli Akureyrar Á svæðinu er góð snyrtiaðstaða og

Tjaldsvæðið við Hamra

Hamrar við Kjarnaskóg
600 Akureyri
Sími: 461 2265 / 461 2264
Netfang: hamrar@hamrar.is
Heimasíða: www.hamrar.is

Hamrar er friðsælt tjaldsvæði skammt frá útivistasvæðinu Kjarnaskógi og Golfvelli Akureyrar. Á svæðinu er góð aðstaða. Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan.

Opnunartími

Tjaldsvæðið opnar í maí og er opið fram í september. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu tjaldsvæðisins.

Salerni

Á Hömrum er salernisaðstaða á 5 stöðum. Þetta eru 40 vatnssalerni. Tvö þessara salernishúsa eru með heitu vatni og þar er einnig sturtuaðstaða. Vaskaaðstaða er við öll salerni og þar eru kranar til að fylla á vatnsbrúsa.

Sturtur

Í tveimur stóru salernishúsunum er heitt vatn og fjórar sturtur í hvoru húsi. Sturturnar eru innfaldar í gistigjaldinu. Einnig er hægt að komast í sturtu í þjónustuhúsinu.

Þvottavél og þurrkari

Á báðum tjaldsvæðunum er hægt að komast í þvottavél og þurrkara ef haft er samband við tjaldverði. Greitt er sérstaklega fyrir hvern þvott/þurkun og hægt að kaupa þvottaefni.

Símar

Tíkallasími er í símklefa við Grænu hlöðuna. Upplýsingasími tjaldstæða að Hömrum 461 2264 og í Þórunnarstræti 462 3379.

Upplýsingar

Tjaldverðir veita allar upplýsingar um tjaldsvæðið. Þeir eru oftast á svæðinu á milli kl 8 og 24. Ekki er víst að á öllum tímum sé hægt að hitta á þá í þjónustuhúsin, því þeir þurfa að sinna ýmsum verkefnum á svæðinu s.s. þrifum og þess háttar.

Rafmagn

Á nokkrum stöðum á svæðinu eru rafmagnstöflur þar sem gestir geta fengið aðgang að. Sérstök millistykki getur þurft til að tengjast töflunum en þau fást hjá tjaldvörðum. Greiða þarf aukalega fyrir rafmagnið.


 
V V 6m / s +5.5°
  • Innsíða - Leirutjörn

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.