Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.
Flýtilyklar
Utan Akureyrar
Draumagisting.is
Draumagisting býður upp á fallegan og rúmgóðan heilsársbústað í landi Þverár í Eyjafjarðarsveit, aðeins 10 km frá Akureyri. Frá bústaðnum er frábært útsýni og má oft njóta fallegs sólarlags og norðurljósa. Á Þverá er 9 holu golfvöllur sem gestum býðst að spila frítt á.
Lesa meira
Frístundahúsin að Ytri-Vík
Frístundahúsin að Ytri-Vík eru stutt utan Akureyrar eða í um 30 km fjarlægð við Ólafsfjarðarveg 82 sem er um 20 mín. akstur frá Akureyri og 10 mín. frá Dalvík.
Lesa meira
Geldingsá við Akureyri, í Vaðlaheiði
Íbúðin er á bænum Geldingsá í Vaðlaheiði, 7 km frá Akureyri. Húsið er á mjög fallegum stað með útsýni inn Eyjafjörðinn og út í fjarðarmynnið með miðnætursólina á sumrin og beint yfir Akureyri og skíðabrekkur Hlíðarfjalls. Íbúðarhúsið er tveggja hæða steinhús sem hefur verið endurnýjað og breytt í orlofshús.
Lesa meira
Gistiheimili og parhúsaleiga
Skammt frá Akureyri er boðið upp á dvöl til lengri eða skemmri tíma í notalegum parhúsum og sérhúsi allt árið um kring. Húsin eru staðsett á fallegum stað þar sem gott útsýni er yfir Eyjafjörðinn.
Lesa meira
Gistiheimilið að Engimýri í Öxnadal
Gistiheimilið að Engimýri, Öxnadal er heilsárs gistiheimili staðsett aðeins 34 km vestan Akureyrar við þjóðveg númer 1. Um 20 mín akstursfjarlægð frá Akureyri.
Lesa meira
Gistiheimilið Kambur
Gistiheimilið er með vel útbúin herbergi. Eigin inngangur fyrir gesti, garður og sjávarútsýni. Öll herbergin eru með sjónvarpi.
Lesa meira
Gistiheimilið Ytra-Laugaland
Notaleg heimagisting á sveitabæ í fallegu umhverfi í Eyjafjarðarsveit um 15 km frá Akureyri.
Lesa meira
Gistihúsið Hrafnagili
Hrafnagil er 12 km sunnan við Akureyri, vestan megin Eyjafjarðarár, við veg nr. 821. Í gamla bænum í Hrafnagili er boðið upp á gistingu í 6 herbergjum án baðs. Uppbúin gæða rúm með morgunverði.
Lesa meira
Gistiþjónustan Lónsá
Gistiþjónustan Lónsá er opin allan ársins hring. Hún er staðsett við Þjóðveg nr. 1 í rólegu hverfi við bæjarmörk Akureyrar. Aðeins er um 2 mínútna akstur til Akureyrar.
Lesa meira
Guesthouse Sólheimar 1
Gistiheimilið sem var tekið í notkun 2002 og er opið allt árið. Húsið er 120 m2 og með 4 svefnherbergi.
Lesa meira
Halllandsnes - einbýlishús
Halllandsnes er vinarlegt, vel búið og rúmgott einbýlishús með dásamlegu útsýni yfir Akureyri og Hlíðarfjall. Frábær kostur fyrir þá sem vilja vera í kyrrð og ró, en þó með aðgang að góðri þjónustu.
Lesa meira
Hotel Natur - Þórisstaðir
Hótelið er opið allt árið og er búið 22 tveggja manna herbergjum sem öll eru með baði. Um 10 til 15 mínútna akstur frá Akureyri
Lesa meira
Leifsstaðir
Leifsstaðir er nýlegt gistihús í 100 metra hæð yfir sjávarmáli með fallegt útsýni yfir Akureyri og inn Eyjafjörðinn. Staðurinn er opinn allt árið.
Lesa meira
Pétursborg
Gistiheimilið Pétursborg stendur við veg 817, 5 km norðan við Akureyri eða í um það bil 7 mínútna akstri frá bænum. Boðið er upp á gistingu annarsvegar í gistiheimili og hinsvegar sumarhúsi.
Lesa meira
Safnasafnið - íbúð
Íbúð með sérinngangi og fastri nettengingu, grilli í garði. Um 15 mín frá Akureyri.
Lesa meira
Skjaldarvík ferðaþjónusta
Skjaldarvík er 5 km frá Akureyri. Þar er boðið upp á gistingu í 27 fallega búnum herbergjum með sameiginlegri bað- og snyrtiaðstöðu, morgunverður er innifalinn. Herbergin eru eins til fjögurra manna.
Lesa meira
Sveitahótelið Sveinbjarnargerði
Sveitahótelið Sveinbjarnargerði er staðsett við þjóðveg nr.1 um 10 mínútna akstur frá Akureyri. Þar eru 39 tveggja manna herbergi og 5 eins manns - öll með baði.
Lesa meira
Vaðlaborgir
Vaðlaborgir er þyrping orlofshúsa sem rísa á fallegum stað í Eyjafirði, gegnt Akureyri í u.þ.b. 4km fjarlægð frá bænum. Orlofshúsin eru átta, í rólegu og barnvænu umhverfi með gott útsýni yfir pollinn, Akureyrarbæ og yfir í Hlíðarfjall.
Lesa meira
Vaðlaborgir 17
Til leigu glæsilegt heilsárshús í Vaðlaborgun 17 beint á móti Akureyri. Í húsinu eru 3 svefnherbergi með rúmum fyrir 8 manns. Hægt er að fá ungbarnarúm að auki.
Lesa meira
Öngulstaðir III
Ferðaþjónustan Öngulsstöðum III býður upp á gistingu í 17 herbergjum með baði, tveggja- til fjögurra manna, ásamt íbúð með tveim herbergjum, eldhúskrók og setustofu.
Lesa meira
Leit
Svæði
SA 2m / s
-1°


















Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.