Draumagisting.is
601 Akureyri
Gsm: 699 1132
Netfang: gisting@draumagisting.is
Heimasíða: www.draumagisting.is
Draumagisting býður upp á fallegan og rúmgóðan heilsársbústað í landi Þverár í Eyjafjarðarsveit, aðeins 10 km
frá Akureyri. Frá bústaðnum er frábært útsýni og má oft njóta fallegs sólarlags og norðurljósa. Á
Þverá er 9 holu golfvöllur sem gestum býðst að spila frítt á.
Húsið er vel útbúið fyrir allt að 12 manns, en þar eru tvö svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum, stofa með góðum svefnsófa og svefnloft með dýnum fyrir 8 manns, auk barnarúms og barnastóls. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu rými, í stofu er glæsilegur arinn og baðherbergið er með sturtu. Á verönd er heitur pottur, gasgrill og sumarhúsgögn. Hægt er að leigja rúmföt og handklæði.
Nánari upplýsingar, fyrirspurnir og bókanir eru á heimasíðu og í síma 699 1132.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.