Geldingsá við Akureyri, í Vaðlaheiði

Geldingsá við Akureyri, í Vaðlaheiði Íbúðin er á bænum Geldingsá í Vaðlaheiði, 7 km frá Akureyri. Húsið er á mjög fallegum stað með útsýni inn

Geldingsá við Akureyri, í Vaðlaheiði

Geldingsá.
Geldingsá.

Geldingsá
Heimasíða: www.gisting.blog.is
Netfang: jfossdal@simnet.is 
Sími: 663 4646

Íbúðin er á bænum Geldingsá  í Vaðlaheiði, 7 km frá Akureyri. Húsið er á mjög fallegum stað með útsýni inn Eyjafjörðinn og út í fjarðarmynnið með miðnætursólina á sumrin og beint yfir Akureyri og skíðabrekkur Hlíðarfjalls. Íbúðarhúsið er tveggja hæða steinhús sem hefur verið endurnýjað og breytt í orlofshús. Húsið stendur fjarri öðrum húsum á þessum góða útsýnisstað. Eigendur hússins sem eru hjón á eftirlaunum, nota efri hæðina sem sinn íverustað í sveitasælunni en búa á höfuðborgarsvæðinu.

Í íbúð á neðri hæðinni er sér inngangur. Hún er leigð sem orlofsstaður fyrir ferðamenn sem vilja njóta kyrrðarinnar í sveitinni jafnframt því að hafa Akureyri og Hlíðarfjall innnan seilingar. Þar er svefnaðstaða fyrir fjóra í tveimur svefnherbergjum sem eru bæði með tvíbreiðum rúmum. Rúmin eru uppábúin og handklæði fylgja. Í stofunni, sem er opin og þægileg, er hornsófi sem 2 börn gætu sofið í.  Eldhúsið er vel útbúið, gott baðherbergi með sturtu, sér þvottahús með þvottavél og þurrkara og mikið skápapláss er í íbúðinni.

Þá er íbúum til afnota myndbandstæki, DVD, sjónvarp með nokkrum stöðvum, ásamt þráðlausri internet tengingu. Útiaðstaða er  sunnan við húsið, þar eru borð, stólar og  gasgrill. Spennandi gönguleiðir eru frá Geldingsá og stutt í gott berjaland.

Að lokinni leigu, ber að þrífa íbúðina, en öll gólf eru flísalögð og auðveld í þrifum. Þvottaefni, sápur og klósettpappír er til staðar. Reykingar eru ekki leyfðar. Dýr má ekki hafa innandyra en á túninu er nóg pláss fyrir dýr að leika sér.


 
V V 6m / s +5.5°
  • Innsíða - golf Jón Óskar

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.