Pétursborg
601 Akureyri
Sími: 4611811
Fax: 461 1333
Netfang: guesthouse@petursborg.com
Heimasíða: www.petursborg.com
Gistiheimilið Pétursborg stendur við veg 817, 5 km norðan við Akureyri eða í um það bil 7 mínútna akstri frá bænum. Boðið er upp á gistingu annarsvegar í gistiheimili og hinsvegar sumarhúsi.
Gistiheimilið
Í boði er gisting í 1 til 4 manna herbergjum með eða án baðs. Herbergin eru einföld en snyrtileg og þægileg. Það er eldunaraðstaða fyrir gestina og setustofa með sjónvarpi. Í garðinum er grillaðstaða og heitur pottur. Boðið er upp á morgunverð. Pétursborg er rólegur staður með fallegt útsýni yfir Eyjafjörðinn og mikið fuglalíf í kring um staðinn.
Sumarhúsið
Í boði er 6 manna sumarhús sem er 60 fm stórt. Þar eru þrjú 2ja manna svefnherbergi (2 með kojur og 1 með hjónarúmi), setustofa með sjónvarpi, eldhús með öllu sem þarf (ísskáp, eldavél, bakaraofn, kaffivél, brauðrist) og baðherbergi með sturtu. Einnig stór sólpallur í kringum húsið með fallegt útsýni. Kolagrill er á staðnum.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.