Á Akureyri er að finna alla flóruna í veitingahúsum og skemmtistöðum. Úrvals veitingastaðir sem bjóða heimsklassa rétti sem kitla bragðlaukana eru vissulega á sínum stað og það fjölmargir. Einnig er hægt að gípa skyndibita af ýmsu tagi á fjölmörgum veitingastöðum.
Kaffihúsin eru mörg og vinsæl og sum þeirra orðin að eins konar kennileitum í bænum. Sömu sögu er að segja um skemmtistaðina sem hafa sumir hverjir verið mærðir í sönglagatextum en ballstaðirnir spanna allt litrófið og eru fyrir alla aldurshópa. Það er gaman að skemmta sér á Akureyri.
Smelltu á tenglana að ofan til hægri og þú finnur það sem þú leitar að.



Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.