Kaffihús og barir

Visitakureyri.is birtir upplýsingar um gistingu, veitingar, afþreyingu og ýmislegt fleira í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Síðan er ætluð jafnt

Kaffihús og barir

Amts-Café

Amts-Café

Amts-Café er staðsett í nýrri viðbyggingu Amtsbókasafnsins á Akureyri. Hægt er að fá heita rétti í hádeginu, frá 11:30-14:00, og þeir eru mjög mismunandi. Einnig er hægt að fá salat, bökur og ýmislegt annað góðgæti á vægu verði, ásamt kaffi og kakó.
Lesa meira
Bakaríið við Brúna

Bakaríið við Brúna

Kaffihús og bakarí. Boðið upp á létta rétti, súpur, smurtbrauð og kökur. Opið frá 7.0 til 18.00 á virkum dögum og 7.0 16.00 um helgar.
Lesa meira
Bláa Kannan

Bláa Kannan

Bláa Kannan er staðsett í hjarta bæjarins og opnar á morgnana með nýbökuðu brauði. Í hádeginu er boðið upp á súpu og rétt dagsins. Kökur og samlokur eru framreiddar allan daginn ásamt fersku kaffi.
Lesa meira
Brauðbúðin

Brauðbúðin

Brauðbúðin er bæði bakarí og kaffihús, staðsett í göngugötunni rétt hjá Ráðhústorginu. Þar er auk nýbakaðs brauðs boðið upp á léttar máltíðir í hádeginu, súpu og brauð.
Lesa meira
Brugghúsbarinn

Brugghúsbarinn

Brugghúsbarinn er lítill en kosý bar sem áður var Kaffi Karólína, staðsettur í miðju gilinu í miðbæ Akureyrar.
Lesa meira
Bögglageymslan

Bögglageymslan

Bögglageymslan er bjór og whisky bar á neðri hæð Rub 23, en áður var einmitt Bögglageymsla KEA  staðsett í sama húsnæði.
Lesa meira
Café Amor

Café Amor

Glæsilegt kaffihús við Ráðhústorgið í hjarta bæjarins. Boðið er upp á ljúffengar tertur og létta rétti ásamt fjölbreyttu úrvali af drykkjum.
Lesa meira
Flugkaffi

Flugkaffi

Flugkaffi er veitingahús með vínveitingar staðsett á Akureyrarflugvelli.
Lesa meira
Græni Hatturinn

Græni Hatturinn

Græni hatturinn er bar sem býður upp á fjölbreytt úrval drykkja og lifandi tónlist. Græni Hatturinn er staðsettur á neðri hæð Bláu Könnunnar.
Lesa meira
Götubarinn

Götubarinn

Götubarinn er huggulegur bar í hjarta bæjarins og stendur við Göngugötuna. Innréttingar og útlit staðarins ríma við hina gömlu Akureyri enda má þar sjá ýmsar skírskotanir í liðinn tíma. Mikið úrval bjórtegunda fæst á Götubarnum.
Lesa meira
Kaffi Akureyri

Kaffi Akureyri

Kaffi Akureyri er rótgróinn staður með stóran hóp viðskiptavina og gesta.Kaffi Akureyri opnar klukkan 18 alla virka daga en klukkan 15 um helgar.
Lesa meira
Kaffi Jónsson

Kaffi Jónsson

Kaffi Jónsson býður upp á kaffi, kökur, léttar málíðir og sérhæfir sig í ísréttum.
Lesa meira
Kaffi Költ

Kaffi Költ

Kaffi Költ er staðsett í miðbæ Akureyrar, Geislagötu 10. Þar er eingöngu boðið upp á heimabakað góðgæti svo sem tertur, kökur , grilluð ,,panini”, eggjalokur og margt fleira.
Lesa meira
Kaffi Torg

Kaffi Torg

Kaffi Torg er til húsa í Glerártorgi, glæsilegri verslunarmiðstöð á Gleráreyrum, sem opnuð var í nóvember árið 2000. Þar er boðið upp á annars vegar hamborgara, kjúklinga og franskar og hins vegar smurbrauðsrétti, kökur og fleiri létta rétti.
Lesa meira
Kristjánskaffi Conditori

Kristjánskaffi Conditori

Kristjánskaffi býður upp á nýbakað brauð, kökur og léttar máltíðir. Í hádeginu er boðið upp á rétt dagsins. Kristjánskaffi er staðsett í sama húsnæði og Bónus.
Lesa meira
Sportvitinn

Sportvitinn

Sportvitinn á Akureyri er staður fyrir alla unnendur íþrótta. Staðurinn, sem staðsettur við Strandgötu 53 (gamli Oddvitinn), tekur 200 manns í sæti í stóra salnum en 80 manns rúmast í minni salnum.
Lesa meira
Te og kaffi

Te og kaffi

Te og kaffi er staðsett í bókabúðinni Pennanum Eymundsson. Í boði er fjölbreytt úrval kaffidrykkja og kökur. Tilvalið er að grípa í tímarit eða bók til að blaða í meðan ljúffengra veitingar er notið.
Lesa meira
 
SA SA 2m / s -1°
  • Mynd 3

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.