Á Sportvitanum er boðið uppá gæði, bæði í hljóð og mynd. Myndvarpinn sem settur var upp er einn sá allra öflugasti á
markaðnum í dag en um er að ræða HD varpa með mjög miklum ljósastyrk og góðri upplausn. Myndinni er varpað á 30 fermetra
bíótjald í stóra salnum en í minni salnum verður einnig boðið upp á stórt tjald auk 3D sjónvarpa.
Stefnan er að sýna allt íþróttaefni sem á að sýna í gegnum gervihnött, hvort sem það er fótbotli, handbolti,
akststursírþróttir, körfubolti og svo framvegis.
Opnunartími fer eftir því hvaða leikir eru í gangi en ekki verður opið utan þess. Frekari upplýsingar er hægt að
nálgast hjá Davíði Rúnari Gunnarssyni í síma: 896-3233, dabbi@sjallinn.is
Facebook síða er í vinnslu.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.