Kebab.is
Skipagata 2
600 Akureyri
Sími: 461 1615
Heimasíða: www.kebab.is
Kebab.is er skyndibitaastaður í hjarta bæjarins, við Skipagötu 2, rétt við Ráðhústorgið.
Við bjóðum aðeins uppá úrvals hráefni og hollustu, ferskt grænmeti, hlýlegt og notalegt umhverfi, en í bakgarðinu okkar, "Portinu" er notalegur pallur með stólum og borði, þar sem hægt er að setjast út þegar veðrið er gott og njóta sælunnar inni í miðju bæjarins.
Opið alla daga vikunnar frá 11.30 til 21.00. Á sumrin annast staðurinn einnig morgunmat fyrir Gistiheimili Akureyrar og býður upp á hefðbundin evrópskan morgunverð, kontinental Breakfast, alla daga vikunnar frá kl. 07.00 - 10.00. Ekki þarf að panta sérstaklega nema ef um hóp með fleiri en 6 pers. er að ræða.
Kebab er hollur og bragðgóður skyndibiti sem þú setur saman að eigin vali. Það er ekki flókið að setja saman góðan kebab og valmöguleikarnir mátulegir enda um þrautreynda samsetningu að ræða eins vinsælasta skyndibita á meginlandi Evrópu, þó við höfum farið okkar eigin leiðir í að uppfæra og laga að íslensku mataræði, þar sem hollusta og ferskleiki er í fyrirrúmi.
?




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.