Icelandair Hótel Akureyri
Þingvallastræti 23
600 Akureyri
Sími: 518 1000
Netfang: akureyri@icehotels.is
Heimasíða: www.icelandairhotel.com
Veitingastaðurinn á Icelandair Hótel Akureyri leggur áherslu á norðlenskt hráefni með suður evrópsku ívafi. Á veturna frá 1.október – 1.mars er hann opinn á föstudags og laugardagskvöldum frá 18-21.00 og glæsilegt brunch hlaðborð er á laugardögum og sunnudögum frá 11-14. Að sjálfsögðu er tekið á móti hópum aðra daga.
Frá 1.mars er veitingastaðurinn opinn öll kvöld frá 18.00. Hægt er að kaupa snarl í gestamóttökunni allan sólarhringinn. High tea að hætti breta er í boði í setustofunni alla daga frá 14-18. Og happy hour er alla daga frá 17-19 á barnum.
Aðlaðandi útigarður er við hótelið og í vetur verður þar skemmtileg ,,Aprés ski„ stemning alla daga. Heitir drykkir sem ylja og hressa eftir góðan dag í brekkunum og fleira skemmtilegt við snarkandi opinn eld.




Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.