Til baka

Súpufundur 22. janúar

Dagskrá

Þriðjudagurinn 22. janúar kl. 11.30-13.00
Fundarstaður: Veitingastaðurinn Greifinn, Glerárgötu 20, 2.hæð.
Boðið upp á matarmikla súpu, salat & kaffi á kr.2000 sem greiðist á staðnum.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir lok mánudagsins 21.janúar.

Dagskrá:
11.30  Matur framreiddur og borðað meðan á kynningu og umræðum stendu

11.45 Stafræn fræðsla
Halldór Arinbjarnarson verkefnastjóri Ferðamálastofu
11.55 Fetað í fótspor ferðamannsins. Bókunarhegðun og framtíð
Gauti Arnarsson, viðskiptastjóri Booking.com
12.20 Veggjald í Vaðlaheiðagöng greiðsluleiðir.
Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðaganga
12.30 Walk & Visit
Kynning á nýju fyrirtæki með áherslur á gönguferðir um Akureyri, sem lýkur með heimsókn á íslenskt heimili.  Sigrún Stefánsdóttir
12.40 Breytingar á starfsumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja m.t.t. nýrra laga.
Helena Þ. Karlsdóttir forstöðumaður Stjórnslýslu- og umhverfissviðs Ferðamálastofu.
13.00   Fundarlok

Fundarstjóri: Ragnar Hólm Ragnarsson, verkefnastjóri Akureyrarstofu

Stefnt er að eftirfarandi dagsetningum fyrir súpufundi fram á vorið 19.febrúar, 12.mars, 9.apríl. Óskir um efni inn á fundina má senda á mariat@akureyri.is

Athugið einnig að
Booking.com býður upp á námskeiðið um Extranetið/Ytranetið á Booking.com eftir súpufundinn frá 14 til u.þ.b. 16.00 á Pósthúsbarnum. 

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig hægt er að nýtt sér ytranetið í daglegri starfsemi t.d. til að sjá um bókanir, skoða söluyfirlit, stöðuskýrslu og fleira. Einnig verður farið yfir hvernig nýta má tölfræðina á ytranetinu til þess að greina rekstur fyrirtækisins.

Allir sem eru í samstarfi við Booking á Norðurlandi fá send boð á fundinn.

Ef þú ert með gististað sem ekki er á Booking.com þá er hægt að skrá sig á joon.booking.com og mæta a.m.k. 15 mín áður enn námskeiðið hefst til að fá nauðsynlegar upplýsingar.

Skráðu nöfn þátttakenda á fundinum með kommu á milli.
captcha